Beautiful landscape, pics, people, car and... a VERY good reading material by
Ellý Ármanns!
Published Friday April 4. 2014 at visir.is. See below...
Horfir til kvenna með sjálfsöryggi á leiðinni upp metorðastigann
„Slow Fashion“ vörumerkið Troja snýst um að fanga fegurð og kvenleika Audrey Hepburn sem og það besta frá sjötta áratuginum í eina fatalínu,“ segir Jóhanna María Oppong eigandi Troja sem er menntaður kjólaklæðskeri og viðskiptafræðingur en fatalínan hennar styður við hið hraða líferni nútíma kvenna með umhverfisvænum hætti að hennar sögn.„Yfirskrift línunnar er Classy Rock Elegance þar sem horft er til kvenna með sjálfsöryggi, á leiðinni upp metorðastigann og ekki síður fyrir fagurkera sem velja gæði umfram magn,“ segir Jóhanna en meðfylgjandi myndir voru teknar við upptöku á væntanlegu auglýsingamyndbandi Troja.
„Hugsunin á bak við fatalínu Troja er að mæta þörfinni fyrir gæði, góð snið og möguleika á breyttu útliti á skjótan hátt. Þannig að þú getur valið þína sídd á pilsi eða jafnvel ermum þegar þú byrjar í pantanaferlinu í vefverslun Troja á www.troja.is
„Ný fatalína Troja fer að detta inn í vefverslunina á næstu vikum og mánuðum. Einn kjóll úr þessari línu var frumsýndur á Hönnunarmars og hlaut lof fyrir flott útlit einn og sér en ekki skemmdi fyrir að konur geta breytt honum með því að kaupa auka framstykki, axlastykki, ermar og þar fram eftir götunum,“ útskýrir hún.
„Þessi stykki er líka hægt að nota á Troja-toppinn sem er úr þessari sömu línu til að vera í við pils eða buxur. Þannig er hægt að yfirfæra uppáhalds lúkkið yfir á kjól sem og topp við pils og buxur og þannig verður notendagidlið meira fyrir flíkina. Vegna notkunarmöguleikanna má segja að „All Day, Every Day, Work & Play“ eigi vel við en sjón er sögu ríkari og þess vegna er vert að fylgjast með á næstunni þegar þessar flíkur detta inn hjá Troja,“ segir Jóhanna jafnframt.
Click the following link to check it out at visir.is:
No comments:
Post a Comment