Beautiful landscape, pics, people, car and... a VERY good reading material by
Ellý Ármanns!
Published Friday April 4. 2014 at visir.is. See below...
Horfir til kvenna með sjálfsöryggi á leiðinni upp metorðastigann
„Slow Fashion“ vörumerkið
Troja snýst um að fanga fegurð og kvenleika
Audrey Hepburn sem og það besta frá sjötta áratuginum í eina fatalínu,“ segir
Jóhanna María Oppong eigandi
Troja sem er menntaður kjólaklæðskeri og viðskiptafræðingur en
fatalínan hennar styður við hið hraða líferni nútíma kvenna með
umhverfisvænum hætti að hennar sögn.
„Yfirskrift línunnar er
Classy Rock Elegance
þar sem horft er til kvenna með sjálfsöryggi, á leiðinni upp
metorðastigann og ekki síður fyrir fagurkera sem velja gæði umfram
magn,“ segir Jóhanna en meðfylgjandi myndir voru teknar við upptöku á væntanlegu auglýsingamyndbandi Troja.
Förðun: Ásdís Sverrisdóttir//Hár: Sigrún Eva Þórisdóttir//Stílisti: Ágústa H. Birgisdóttir
„Hugsunin á bak við fatalínu Troja er að mæta þörfinni fyrir
gæði, góð snið og möguleika á breyttu útliti á skjótan hátt. Þannig að
þú getur valið þína sídd á pilsi eða jafnvel ermum þegar þú byrjar í
pantanaferlinu í vefverslun Troja á
www.troja.is
„Ný fatalína Troja fer að detta inn í vefverslunina á næstu
vikum og mánuðum. Einn kjóll úr þessari línu var frumsýndur á
Hönnunarmars og hlaut lof fyrir flott útlit einn og sér en ekki skemmdi
fyrir að konur geta breytt honum með því að kaupa auka framstykki,
axlastykki, ermar og þar fram eftir götunum,“ útskýrir hún.
„Þessi stykki er líka hægt að nota á Troja-toppinn sem er úr
þessari sömu línu til að vera í við pils eða buxur. Þannig er hægt að
yfirfæra uppáhalds lúkkið yfir á kjól sem og topp við pils og buxur og
þannig verður notendagidlið meira fyrir flíkina. Vegna
notkunarmöguleikanna má segja að „All Day, Every Day, Work & Play“
eigi vel við en sjón er sögu ríkari og þess vegna er vert að fylgjast
með á næstunni þegar þessar flíkur detta inn hjá Troja,“ segir Jóhanna
jafnframt.
Click the following link to check it out at visir.is: